Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Hin nítján ára gamla Olivía Ragnheiður Rakelardóttir bjargaði sjö starfsmönnum Hótels Reynihlíðar úr eldsvoða í starfsmannabústöðum þeirra við Mývatn í nótt. Ekki var hægt að bjarga neinum veraldlegum munum og var fjöldahjálparstöð opnuð vegna eldsvoðans í dag. Rætt verður við Olivíu í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Við hittum líka organista Keflavíkurkirkju, sem hvetur fólk til að losa sig við bílana sína og hjóla í staðinn.

Loks verður að sjálfsögðu fjallað um landsleik gærdagsins og rætt við stelpurnar í fótboltalandsliðinu eftir grátlegt tap gegn Frökkum. Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar tvö klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×