Vonar að Víkingaklappið fylgi sér ekki til nýja félagsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2017 23:00 Jón Daði Böðvarsson að taka Víkingaklappið á síðustu leiktíð. Vísir/Getty
Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson er kominn í nýtt félag í enska boltanum eftir að Reading keypti íslenska landsliðsframherjann frá Wolves á dögunum. Jón Daði byrjaði vel með Úlfunum í framhaldi af Evrópumótinu í Frakklandi því hann skoraði í sínum fyrsta leik með Wolves á síðasta tímabili. Stuðningsmenn enska liðsins fengu Jón Daða til að taka Víkingaklappið eftir leikinn en það var ennþá sjóðandi heitt eftir frammistöðu Íslands á EM í Frakklandi. Víkingaklappið fylgdi íslenska landsliðsframherjanum áfram út tímabilið en Jón Daði stjórnaði nefnilega klappinu eftir marga sigurleiki Úlfanna á leiktíðinni. Í viðtali við fótbolta.net var Jón Daði spurður að því hvort að Víkingaklappið fylgi með í kaupunum og hvort stuðningsmenn Reading eigi núna von á því að taka saman nokkur „húh“ á komandi tímabili. „Ég vona ekki, eins mikið og mér þykir vænt um þetta klapp. EM er búið og þetta er liðin tíð. Á maður ekki bara að gera þetta með landsliðinu? Ég vil ekki gera meira af því með félagsliði,“ sagði Jón Daði í viðtalinu við fótbolta.net. Jón Daði útilokar þó ekki að taka klappið ef þrýstingurinn verður mikill frá stuðningsmönnum Reading. Það má því búast við því að hann verði píndur að skella sér fyrir framan liðsfélagana og stjórna einu Víkingaklappi eftir einhvern sigurleikinn á komandi vetri.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Sjá meira