Íslenski boltinn

Undanúrslit Borgunarbikarsins: Leiknismenn fara í Krikann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leiknir sló út Pepsi-deildarlið ÍA í gær.
Leiknir sló út Pepsi-deildarlið ÍA í gær. Vísir/Ernir
Leiknir R. mætir Íslandsmeisturum FH í undanúrslitum Borgunarbikars karla. Leiknismenn tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar í fyrsta sinn í sögu félagsins með sigri á ÍA í gær.

Í hinum undanúrslitleiknum í karlaflokki fær Stjarnan ÍBV í heimsókn.

Í kvennaflokki mætir Stjarnan Val og ÍBV fær Grindavík í heimsókn.

Karlaleikirnir fara fram 27. og 28. júlí og kvennaleikirnir 13. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×