Bílar

Ford færir framleiðslu Focus til Kína

Finnur Thorlacius skrifar
Ford Focus framleiddur í Bandaríkjunum.
Ford Focus framleiddur í Bandaríkjunum.
Fram til þessa hafa þeir Ford Focus bílar sem seldir eru í Bandaríkjunum verið framleiddir þar. Ford hafði uppi áform um að flytja framleiðslu bílsins til Mexíkó en hefur nú hætt við það og ætlar að framleiða bílinn í Kína. Um talsvert lengri leið verður að fara að flytja bílana frá Kína en frá Mexíkó.

Ford tók þó þessa ákvörðun þar sem fyrirtækið mun spara sér 1 milljarð dollara með því að flytja framleiðsluna til Kína. Með því þarf Ford ekki að byggja upp samsetningarverksmiðju eins og áform voru um í Mexíkó, sem sparar 500 milljón dollara en auk þess sparast 500 milljón dollarar að auki vegna ódýrari framleiðslu á bílnum í Kína.

Í verksmiðjunni í Bandaríkjunum þar sem sem Ford Focus er smíðaður nú verða smíðaðir jeppar, jepplingar og pallbílar og enginn mun missa starf sitt í verksmiðjunni. Fyrst verða smíðaðir þar Ranger pallbíllinn og nýr Bronco jeppi. Framleiðsla Ford Focus í Kína mun hefjast á öðrum ársfjórðungi ársins 2019. Sala Ford Focus í Bandaríkjunum hefur veriðp á niðurleið undanfarið og hefur fallið um 19% það sem af er þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×