Ein stærsta ferðahelgi ársins framundan: Umferð stöðugt að þyngjast á þjóðvegunum Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. júní 2017 16:52 Guðbrandur vekur sérstaka athygli á Írskum dögum á Akranesi sem fram fara um helgina. Vísir/Andri marínó
Ein stærsta ferðahelgi ársins er nú rétt handan við hornið. Aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hvetur ökumenn til að fara varlega en hann gerir ráð fyrir að umferð þyngist nú eftir klukkan fimm. Hann segir jafnframt mikla breytingu hafa orðið á ferðavenjum Íslendinga. „Við ætlum að umferð geti verið talsverð frá höfuðborgarsvæðinu þar sem að fyrsta helgi í júlí er ein af stærri helgum sumarsins,“ segir Guðbrandur Sigurðsson aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann gerir ráð fyrir að umferð frá höfuðborgarsvæðinu þyngist töluvert nú eftir fimm þegar fólk lýkur vinnu. Guðbrandur vekur sérstaka athygli á Írskum dögum á Akranesi, sem fram fara um helgina, og öðrum bæjarhátíðum víðs vegar um landið. Hann hvetur ferðalanga sem stefna á hátíðir til þess að fara varlega á þjóðvegunum en nú um helgina munu bifhjólamenn lögreglunnar sérstaklega vakta þungar umferðaræðar á Suðurlands- og Vesturlandsvegi. Guðbrandur segir þó nokkra breytingu hafa orðið á ferðavenjum Íslendinga síðari ár en verslunarmannahelgin er hætt að skera sig úr sem stærsta ferðahelgi ársins. Umferð út á land hefur aukist jafnt og þétt aðrar helgar yfir sumartímann. „Þetta eru allt orðnar stórar ferðahelgar, umferð er stöðugt að þyngjast á þjóðvegunum,“ segir Guðbrandur.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Sjá meira