Innlent

Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hæstiréttur staðfesti þriggja ára fangelsisdóm yfir manninum.
Hæstiréttur staðfesti þriggja ára fangelsisdóm yfir manninum. Vísir/Magnús Hlynur
Hæstiréttur staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm yfir karlmanni sem var ákærður fyrir að brjóta kynferðislega gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var 13 og 14 ára.

Manninum var meðal annars gefið að sök að hafa í tvö skipti stungið fingri í leggöng stúlkunnar og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum þar sem hún var sofandi. 

Þá hafði hann einnig ítrakað áreitt hana með kynferðislegu og ósiðlegu orðbragði. Meðal annars með því að segja við hana að hún væri ekki hrein mey, að hún væri ekki heil og ekki hrein og einnig með því að spyrja hana hvort hún væri orðin háð samförum þar sem brjóst hennar væru komin lægra niður. 

Þá hafi hann í eitt skipti, þegar stúlkan lá sofandi í rúmi sínu, hvíslað að henni hvort hún vildi hafa samfarir við hann en þá hafi stúlkan vaknað.

Móðir stúlkunnar lagði hart að dóttur sinni að draga frásögn sína til baka um misnotkunina.

Við aðalmeðferð málsins breyttu bæði maðurinn og stúlkan framburði sínum og sögðu hann hreinan uppspuna. Maðurinn var þó sakfelldur í héraðsdómi þar sem tveir vitnisburðir stúlkunnar lágu fyrir sem gögn í málinu þar sem hún er sögð hafa lýst atvikum mjög nákvæmlega. 

Maðurinn játaði tvisvar í yfirheyrslum hjá lögreglu og bar fyrir sig áhyggjur af því að stúlkan væri byrjuð að stunda kynlíf. Hann hefði varla sofið og viljað athuga hvort meyjarhaftið væri enn órofið. Framburður hans fyrir dómi þótti bæði ruglingslegur og ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum.

Maðurinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 16. mars síðastliðinn. Hæstiréttur staðfesti þann dóm og gerði manninum einnig skylt að greiða samtals 941.100 krónur af áfrýjunarkostnaði málsins.

Dóm Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×