Innlent

Safna fyrir heilabilaða

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Lóa Margrét, Sónata og Þórey Kristín hafa frá skólalokum safnað dóti og selt á tombólu til styrktar heilabiluðum.

Þær eiga allar afa eða ömmu sem hafa fengið heilabilun og vilja gjarnan styrkja rannsóknir.

„Næst ætlum við að styrkja krabbameinssjúka. Okkur líður mjög, mjög, mjög, mjög vel að gera eitthvað gott," segja þær í viðtali sem má sjá hér að ofan.

Þar má einnig sjá þessar framtakssömu stúlkur sýna mikla sölutakta þar sem þær hreinlega ná sér í viðskiptavini - enda um mikilvægt málefni að ræða og þeirra hjartans mál að styrkja það. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×