Lífið

Sjáðu myndirnar úr íshellateitinu inni í Langjökli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikil stemning inni í Langjökli.
Mikil stemning inni í Langjökli. Myndir/ásgeir helgi og Juliette Rowland
Föstudaginn síðastliðinn kom norski tónlistarmaðurinn BAYA til landsins til að spila á einu mest framandi sviði heims, inni í íshelli Langjökuls. Tónleikarnir sem voru í boði Red Bull voru liður í hliðardagskrá Secret Solstice tónlistarhátíðarinnar.

Gestir fóru um borð í rútu á föstudagsmorgni og þurftu ferðalangarnir að setja á sig mannbrodda þegar ævintýrið inn í mannvirkið hófst.

Allir fengu leiðsögn um íshellinn og fengu frásögn um það hvernig hellirinn var mótaður með mannafli og hvernig hægt er að sjá aldur íssins af rákunum í veggjunum. Þegar búið var að skoða sig um var fólki boðið upp á veitingar og tónleikar hófust.

Hellirinn bráðnaði

Það var hin íslenska rafhljómsveit aYia sem steig fyrst á svið en hún er ein nýjasta og heitasta hljómsveit íslensku raftónlistarsenunnar.

Næstur á svið var hinn norski BAYA (Andrew Murray Baardsen) sem hefur á örfáum mánuðum orðið einn áhrifamesti nýliði norsku raftónlistarsenunar.

Fyrsta platan hans kom út í febrúar og ber hún nafnið Oslo-Harlem og er innblásin af fyrstu kynnum Andrews við pabba sinn, Bruno Baya Sompohi, fyrir nokkrum árum.

BAYA tókst vel að fá gesti til að dansa sem varð til þess að hellirinn byrjaði bókstaflega að bráðna undan hita fólksins.

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir úr teitinu.


Tengdar fréttir

Ísgöngin í Langjökli metin á milljarð króna

Félagið sem býður upp á ferðir í ísgöngin í Langjökli er metið á rúman milljarð króna í bókum framtakssjóðsins ITF. Virði félagsins var fært upp um 150 prósent í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×