Sport

Einn fremsti tennisleikari Breta notaði kókaín og féll á lyfjaprófi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dan Evans situr í 50. sæti heimslistans.
Dan Evans situr í 50. sæti heimslistans. vísir/epa
Dan Evans, einn fremsti tennisleikari Bretlands, hefur greint frá því að hann hafi fallið á lyfjaprófi í apríl síðastliðnum.

Kókaín fannst í sýni Evans sem fékk að vita af því að hann hefði fallið á lyfjaprófi fyrr í vikunni.

„Ég gerði mistök og verð að gangast við þeim,“ sagði Evans sem er í 50. sæti á heimslistanum í tennis.

Evans hefur verið á hraðferð upp heimslistann á undanförnum mánuðum. Í apríl 2005 var hann í 772. sæti en í mars síðastliðnum var hann kominn upp í 41. sætið.

Evans þótti mikið efni á sínum tíma en hefur ekki náð að fullnýta hæfileika sína vegna agavandamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×