Innlent

Miklar tafir á umferð eftir árekstur undir Esjunni

Atli Ísleifsson skrifar
Langar raðir hafa myndast í báðar áttir eftir áreksturinn.
Langar raðir hafa myndast í báðar áttir eftir áreksturinn. Kolbeinn Tumi
Miklar tafir eru nú á umferð í báðar áttir á þjóðvegi 1 á Kjalarnesi eftir árekstur tveggja bíla undir Esjunni.

Umferðinni er hleypt í eina átt í einu á meðan unnið er á vettvangi.

Mikil umferð er nú út úr bænum enda mikil ferðhelgi framundan og fjölmargar bæjarhátíðir að hefjast.

Ekki liggja fyrir upplýsingar fyrir um hvort einhverjir hafi slasast í árekstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×