Heimsmeistararnir unnu sinn riðil eftir öruggan sigur Elías Orri Njarðarson skrifar 25. júní 2017 17:00 Timo Werner skoraði tvö mörk fyrir Þýskaland í dag visir/getty
Tveimur leikjum er nú lokið í B-riðli Álfukeppninni í fótbolta í dag. Síle mætti Ástralíu en fyrir leik sat Síle í efsta sæti B-riðils með 4 stig. James Troisi, leikmaður Melbourne Victory í Ástralíu, kom Áströlum óvænt yfir í leiknum á 42. mínútu leiksins þegar að boltinn barst til hans inn á teig og hann vippaði boltanum snyrtilega yfir Claudio Bravo í marki Síle. Leikurinn var jafn og spennandi en á 66. mínútu jafnaði Síle metin þegar Martín Rodriguez, sem spilar með Cruz Azul í Mexíkó, skoraði eftir lélega hreinsun frá Áströlum. Fleiri voru mörkin ekki og leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Síle tekur annað sætið í riðlinum með 5 stig en Ástralir sitja í þriðja sætinu með 2 stig. Þýskaland og Kamerún mættust í hinum leik B-riðilsins. Þjóðverjar voru sterkari í leiknum en hvorugt liðanna tókst að skora þegar að fyrri hálfleik lauk. Staðan var því 0-0 í hálfleik. Kerem Demirbay, leikmaður TSG Hoffenheim, kom Þýskalandi yfir með snyrtilegu skoti fyrir utan teig. Þjóðverjar búnir að brjóta ísinn og komnir yfir. Það dró svo til tíðinda þegar að Ernest Mabouka fékk rautt spjald á 64. mínútu eftir að myndbandsdómarar leiksins dæmdu hann brotlegan við lítinn fögnuð leikmanna Kamerún. Stuttu eftir rauða spjaldið kom Timo Werner Þýskalandi yfir með fínum skalla á 67. mínútu og Þjóðverjar komnir með fínt forskot. Á 78. mínútu leiksins gerði Ter Stegen, markvörður Þýskalands, sig sekan um slæm mistök þegar að Vincent Aboubakar skallaði að marki, beint á Ter Stegen sem átti að verja frá Aboubakar og kom Kamerúnum aftur inn í leikinn. Timo Werner var hins vegar ekki á sama máli og bætti sínu öðru marki við, á 81. mínútu, með snyrtilegu skoti eftir að hafa fengið boltann inn á vítateig Kamerún. Þjóðverjar fengu fleiri færi til þess að auka forskot sitt, en það gekk ekki eftir. Leiknum lauk með 4-1 sigri Þjóðverja sem taka efsta sætið í B-riðlinum með 7 stig en Kamerún er á botni riðilsins með 1 stig og eru því úr leik.
Fótbolti Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Sjá meira