Mörg mál Bjarkarhlíðar endað með kæru Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. júní 2017 22:35
Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, hefur aðstoðað 103 þolendur frá því í byrjun mars þegar miðstöðin tók formlega til starfa. Flest málanna varða heimilisofbeldi þar sem þolendur eru konur. Mörg málanna hafa orðið grundvöllur sakamálarannsóknar hjá lögreglu. Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis sem tók formlega til starfa í byrjun mars á þessu ári. Bjarkarhlíð dregur nafn sitt af húsnæðinu sem Reykjavíkurborg leggur verkefninu til en það hefur verið í eigu borgarinnar síðan árið 1972. Markmið Bjarkarhlíðar er að veita stuðning og ráðgjöf, fyrir þolendur ofbeldis, ásamt fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. „Síðan 2. mars, þegar það var formleg opnun, höfum við fengið 103 mál í hús og þar af 95 konur og 8 karlmenn,“ segir Ragna Björg Guðbrandsdóttir, verkefnastjóri Bjarkarhlíðar. Um er að ræða allar tegundir ofbeldismála. Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir ofbeldi og vill vinna með afleiðingar þess þá getur það leitað til Bjarkarhlíðar. „Heimilisofbeldi er kannski stærsti flokkurinn sem við erum að sjá og þar hefur mikið að segja að það hefur orðið mikil vitundarvakning með breyttu verklagi lögreglunnar og samstarfi við félagsþjónustuna og barnavernd. Við komum svolítið í kjölfarið á því og njótum góðs af því,“ segir Ragna. Það er lögreglukona í fullu starfi hjá Bjarkarhlíð. „Hún hefur talað við 53 einstaklinga og af þeim málum hafa 18 farið áfram í kæru til lögreglu.“
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Innlent „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Innlent Ávarpar stuðningsmenn af svölunum Innlent Fleiri fréttir Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpar stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Sjá meira