Laga skemmdir vegna mosakrots Höskuldur Kári Schram skrifar 26. júní 2017 13:48 Mosakrotið er ekkert sérstaklega fallegt en Gunnar Arngrímur Birgisson tók þessa mynd á dögunum og vakti athygli á skemmdunum. Gunnar Arngrímur Birgisson
Landgræðsluhópur á vegum Orku náttúrunnar hóf í morgun lagfæringar á skemmdum vegna mosakrots í Litlu Svínahlíð í Grafningi. Verkefnastjóri segir talsvert um mosakrot á fleiri stöðum á landinu en það getur valdið óafturkræfum skemmdum. Landgræðsluhópurinn hóf störf klukkan tíu í morgun en svo virðist sem óprúttnir aðilar hafi rifið upp mosa á svæðinu til að búa til miður falleg orð og skilaboð. Sjá einnig:Ögrandi skilaboð skrifuð í mosa við Nesjavelli Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri Orku Náttúrunnar, sér um verkefnið.Eru þetta miklar skemmdir? „Já, þetta eru svona nokkur orð, kannski tíu orð, sem er búið að rífa úr og svo eru nokkur orð þar sem búið er að raða mosa ofan á annan mosa þannig að það ætti að vera fremur auðvelt að laga það,“ segir Magnea.Svona skemmdir, eru þær slæmar fyrir gróðurinn? „Já, þetta er slæmt fyrir gróðurinn vegna þess að þegar það er komin svona rás í mosann þá getur vatn runnið eftir rásinni og rifið með sér mold, mosa og annan gróður.“Og raunverulega eyðilagt þá allt svæðið? „Já, í raun og veru þar sem það getur smám saman skemmt út frá sér.“ Magnea segir talsvert um svona mosakrot á fleiri stöðum á landinu meðal annars við Liltu kaffistofuna og í Vífilfelli. Nýjum aðferðum, sem Magnea hefur verið að þróa, verður beitt til að lagfæra skemmdirnar. „Þetta er aðferð sem ég hef verið að prófa mig aðeins áfram með. [...] Maður festir mosinn niður með því að setja inn í stafinn og þá nær hann að gróa saman með tímanum en það tekur nokkur ár að gróa alveg.“
Tengdar fréttir Ögrandi skilaboð skrifuð í mosa við Nesjavelli "Ég vona að þetta vekji fólk til umhugsunar,“ segir Gunnar Arngrímur Birgisson sem vakti athygli á skemmdarverkum sem óprúttnir aðilar hafa unnið á mosa í hlíð við Nesjavelli. Í hlíðinni má greina skilaboð sem greypt hafa verið í mosann á borð við "send nudes“ og "life“ svo einhver séu nefnd. 11. júní 2017 11:17 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira
Ögrandi skilaboð skrifuð í mosa við Nesjavelli "Ég vona að þetta vekji fólk til umhugsunar,“ segir Gunnar Arngrímur Birgisson sem vakti athygli á skemmdarverkum sem óprúttnir aðilar hafa unnið á mosa í hlíð við Nesjavelli. Í hlíðinni má greina skilaboð sem greypt hafa verið í mosann á borð við "send nudes“ og "life“ svo einhver séu nefnd. 11. júní 2017 11:17