Sport

Sex íslenskir keppendur á HM í ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helgi Sveinsson er á leið á HM í London.
Helgi Sveinsson er á leið á HM í London. mynd/íf
Í ár eru heimsmeistaramótin hvað fyrirferðamest í afreksstarfi ÍF, Íþróttafélags fatlaðra.

Spjótkastarinn Helgi Sveinsson úr Ármanni ríður á vaðið í júlí en hann verður eini fulltrúi Íslands á HM í frjálsum íþróttum í London. Mótið fer fram á sama leikvangi og var notaður fyrir Ólympíuleikana og Paralympics árið 2012. HM í frjálsum er dagana 14.-23. júlí og von á gríðarlega spennandi keppni í spjótinu hjá Helga sem keppir í flokki F42-44.

Bogfimimaðurinn Þorsteinn Halldórsson frá verður eini íslenski þátttakandinn á HM í bogfimi fatlaðra í september. Mótið fer fram í Kína en þetta verður stærsta mót Þorsteins síðan hann tók þátt í Paralympics í Ríó á síðasta ári. Þá varð hann fyrstur Íslendinga til að vinna sér inn þátttökurétt í bogfimi á Paralympics og hefur síðustu misseri verið að þoka sér ofar á heimslistanum.

Alls sendir Ísland svo fjóra keppendur á HM í sundi sem fram fer í Mexíkóborg dagana 29. september–7. október.

ÍFR-sundkonurnar Sonja Sigurðardóttir og Thelma Björg Björnsdóttir verða mættar aftur í baráttuna en þær kepptu einnig á Paralympics í Ríó í fyrra. Þá verður sundmaðurinn Már Gunnarsson frá Nes/ÍRB einnig á mótinu sem og Fjarðarmaðurinn Róbert Ísak Jónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×