Sport

Bolt ekki undir tíu sekúndum annað hlaupið í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Usain Bolt í hlaupinu í gær.
Usain Bolt í hlaupinu í gær. Vísir/EPA
Usain Bolt bar nauman sigur úr býtum í 100 m hlaupi á Golden Spike-móti í Ostrava í Tékklandi í gær en hann hljóp á 10,06 sekúndum.

Hann var aðeins þremur hundraðshlutum úr sekúndu á undan Yunier Perez frá Kúbu en þetta er annað hlaupið í röð þar sem að Bolt nær ekki að vera undir tíu sekúndum.

Er það í fyrsta sinn á ferli Bolt sem að það gerist.

„Ég er ekki ánægður en ég er að komast af stað með hlaupin mín og á enn eftir að æfa nokkuð,“ sagði Bolt eftir hlaupið í gær.

„Þetta verður allt saman í góðu lagi hjá mér. Ég þarf að fara í skoðun hjá lækninum mínum og fara á æfingar hjá þjálfaranum mínum, þannig að ég hef engar áhyggjur.“

Bolt hefur áður sagt að þetta sé hans síðasta keppnistímabil og að hann muni hætta eftir HM í London í ágúst. Á blaðamannafundi fyrir mótið í Ostrava gaf hann þó til kynna að hann myndi mögulega keppa áfram.

„Við höfum ekki endanlega gert upp hug okkar um hvað við ætlum að gera,“ sagði hann þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×