Lífið

Heldur dagbók um þakklæti

Helga segir margt geta haft áhrifa á andlega heilsu. MYND/ERNIR
Helga segir margt geta haft áhrifa á andlega heilsu. MYND/ERNIR
Helga starfar við ráðgjöf og fræðslu um andlega heilsu og leiðir til að hlúa að henni. Hún lauk grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands og að námi loknu réð hún sig til starfa á Kleppi þar sem hún vann í sex ár.



„Frá því ég var lítil langaði mig að verða sálfræðingur og hjálpa fólki að líða vel. Í gegnum grunnnámið og starfið á Kleppi fannst mér sérstakt að læra ekki um vellíðan heldur aðallega um vanlíðan. Ég lærði heilmikið um kvíða, þunglyndi og aðra andlega sjúkdóma og hvernig hægt er að draga úr einkennum þeirra. Hins vegar langaði mig meira til að beina athyglinni að andlegri heilsu og vellíðan, hvað stuðlar að henni og hvaða þættir hafa áhrif þar á. Þessar pælingar leiddu til þess að ég ákvað að fara ekki í klíníska sálfræði heldur tók masterspróf í félags- og heilsusálfræði,“ útskýrir Helga sem hélt síðan áfram námi og lauk diplómaprófi í jákvæðri sálfræði.

Þakklætistilfinning mikilvæg

Helga segir margt hafa áhrif á andlega heilsu. „Góð, félagsleg tengsl hafa jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan. Regluleg hreyfing sömuleiðis. Þetta er eitthvað sem flestir þekkja og vita en það er gott að kortleggja þetta og rækta markvisst. Það er líka gott að finna fyrir þakklæti og leiða hugann reglulega að því vegna þess að þá líður manni eins og maður sé heppinn og ríkur og lánsamur og að lífið sé betra. Ég mæli með að halda þakklætisdagbók annaðhvort daglega eða vikulega en í henni felst að staldra við og skrifa niður það sem maður er þakklátur fyrir. Það er ágætt að nota sérstaka bók fyrir þetta. Mikilvægt er að finna fyrir þakklætistilfinningunni en ekki bara skrifa niður eitthvað jákvætt og loka svo bókinni. Með því að leiða hugann aftur og aftur að því góða í lífinu og kalla endurtekið fram þakklætistilfinningu verðum við næmari fyrir því að taka eftir því góða í kringum okkur og byggjum upp aukna vellíðan og sátt við lífið. Gott er að gera þessa æfingu í nokkrar vikur og athuga hvort hún hafi áhrif,“ segir Helga og bætir við að fólk sé misþakklátt að eðlisfari, sumir eigi auðvelt með að finna fyrir þakklæti en aðrir ekki. „Góðu fréttirnar eru að allir geta ræktað með sér aukið þakklæti,“ segir hún.

Núvitundaræfingar auka vellíðan

Reglulegar núvitundaræfingar geta líka aukið andlega vellíðan en rannsóknir hafa sýnt fram á að iðkun núvitundar hafi reynst vel við heilsufarsvandamálum eins og þunglyndi, kvíða og stressi. Algengustu núvitundaræfingarnar felast í hugleiðslu, að sögn Helgu. „Þá sest maður niður, lokar augunum og fylgist með eigin andardrætti í um tíu mínútur á hverjum degi og gefur huganum frí á meðan. Þannig er andardrátturinn notaður sem leið til að tengja sig við núið. Þetta snýst í raun um að þjálfa hugann þannig að maður hafi stjórn á því hvert athyglin fer því það sem maður beinir athyglinni að vex og dafnar. Fólk getur fest sig í óþægilegum og erfiðum hugsunum og nær ekki að kúpla sig frá þeim. Þessar æfingar geta meðal annars þjálfað upp færni í að velja hvert við beinum athygli okkar. Núvitund snýst um að upplifa hlutina á hlutlausan hátt en ekki endilega einbeita sér að því jákvæða,“ upplýsir Helga sem sjálf hefur persónulega reynslu af kvíða. „Kvíði var lengi áskorun fyrir mig en núvitund hefur hjálpað mér að takast á við hann.“

Meðvituð augnablik

Margir telja sig ekki hafa tíma til að stunda hugleiðslu en Helga segir að svokölluð meðvituð augnablik geri líka sitt gagn. „Þá tengir maður sig við núið í smástund í einu. Þeir sem vilja prófa þessa nálgun geta látið símann sinn pípa fimm sinnum yfir daginn til að minna sig á að staldra við og tengja sig við núið í stutta stund í einu. Það er hægt með því að fylgjast vel með andardrættinum í hálfa mínútu eða líta upp úr tölvunni og horfa út um gluggann og horfa á tré bærast með vindinum. Það má líka loka augunum og hlusta á umhverfishljóðin. Þetta snýst í raun bara um að tengja sig við núið í stutta stund í senn með því að færa athyglina frá huganum og yfir á eitthvað sem á sér stað á líðandi stundu. Allir ættu að hafa tíma fyrir þetta og flestir upplifa ákveðinn létti í leiðinni,“ segir hún að lokum.



Hægt er að nálgast fróðleik og æfingar fyrir andlega heilsu á vefsíðunni www.andlegheilsa.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×