Lífið

Kvenofurhetjurnar sem við viljum sjá á skjánum

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Khamala Khan, Ms. Marvel, er ein heitasta kvenofurhetjan í dag.
Khamala Khan, Ms. Marvel, er ein heitasta kvenofurhetjan í dag.
Wonder Woman gætu haft merkileg áhrif í kvikmyndaiðnaði þar sem kvenkyns ofurhetjum hefur verið haldið niðri um árabil. Systkinin Hugleikur og Úlfhildur Dagsbörn spá í spilin og ræða um áhugaverðar kvenhetjur sem eiga skilið að komast á skjáinn, stórmerkilega sögu Wonder Woman og þörf mannfólksins til að spegla sig í hetju.

Kvikmyndin um Wonder Woman í leikstjórn Patty Jenkins fer sigurför um heiminn um þessar mundir og rakar inn tekjum í miðasölu.

Valdamiklir menn í kvikmyndabransanum hafa haldið því fram að til lítils sé að framleiða kvikmyndir byggðar á teiknimyndasögum með konum í aðalhlutverki. Þetta kom rækilega fram í Sony-lekanum svokallaða árið 2014 þegar birtir voru tölvupóstar framkvæmdastjóra Marvel, Isaac Ike Perlmutter, og fleirum. Í einum tölvupóstanna sem voru birtir telur framkvæmdastjórinn upp þær örfáu myndir sem hafa verið framleiddar og notar lélegt gengi þeirra sem rökstuðning fyrir því að hafa ekki konu í aðalhlutverki.

Í þessum sama leka voru einnig birt ummæli Aarons Sorkin sem hélt því fram að hlutverk kvenna í kvikmyndum væru ekki nærri því jafnerfið og hlutverk karla. Leikkonur væru ekki jafn verðugar og karlleikarar.

Það er því ljóst að það þótti á brattann að sækja fyrir Wonder Woman og í kjölfar vinsældanna bíða í skugganum fleiri kvenkyns­ ofurhetjur eftir því að komast í slaginn á skjánum.





Úlfhildur Dagsdóttir, bókmennta og bókasafnsfræðingur.
Systkinin Úlfhildur og Hugleikur Dagsbörn hafa bæði mikinn áhuga á myndasögum þó að sá áhugi hafi fundið sér ólíkan farveg hjá þeim. Úlfhildur hefur skrifað bókina Myndasagan, þar sem er að finna greinargott yfirlit yfir sögu myndasögunnar og úttekt á menningarlegri stöðu hennar. Hugleikur er landskunnur teiknimyndasöguhöfundur og hefur haft djúpstæðan áhuga á ofurhetjum síðan hann var lítill.

Wonder Woman fjallar um Díönnu Prince sem yfirgefur heimkynni sín og ferðast um Evrópu á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Tilurð ofurhetjunnar er afar áhugaverð.

„Ég hef helst lesið ofurhetjusögur í fræðiskyni og hef aðeins litið í Wonder Woman bækurnar. Það er skrautleg saga á bak við það hvernig Wonder Woman varð til,“ segir Úlfhildur frá. „William Marston vildi skapa kvenhetju sem væri góð fyrirmynd fyrir stelpur.





BDSM-undirtónar í Wonder Woman
Honum þótti stelpur vanta kvenfyrirmyndir sem höfðu völd. Hann á sér sjálfur áhugaverðan bakgrunn en hann bjó með tveimur konum, þeim Oliviu Byrne og Elizabeth, sem voru miklir femínistar. Þetta var á fjórða áratugnum svo fyrirkomulagið hefur verið einstaklega frjálslegt á þessum tíma. Í sögum Wonder Woman eru svo skemmtilegir BDSM undirtónar.

Hún er vopnuð snörum sem hún notar ýmist sem svipur eða til að snara. Þá eru miklar bindingar. Ýmist er hún bundin eða hún að binda. Það er frjálslegt stuð í kringum Wonder Woman,“ segir Úlfhildur og segir skemmtilegt að sálfræðingur hafi álitið hana góða fyrirmynd ungra kvenna.

„Það er engin spurning að svo frjálslegar fyrirmyndir voru þarfaþing á þessum tíma. Almennt séð var fólk á móti myndasögum á þessum tíma en þær voru þó vinsælar.

Myndasögur fyrir konur, rómönsur og ástarævintýri nutu mikilla vinsælda. Þessu var öllu saman mótmælt af siðapostulum. Því þarna voru konur að fara gegn ríkjandi gildum. Konur á framabraut sem hugsuðu um vinnuna og ástarævintýri sín. Þetta frelsi kvenna í sögum þótt ekki heppilegt,“ segir Úlfhildur.





Ný íslömsk ofurhetja
BDSM undirtónar í sögum um Wonder Woman.
„Roz Kaveney skrifaði bráðskemmtilega bók um ofurhetjusögur. Í henni talar hún meðal annars um reiði vinkvenna sinna sem eru femínistar yfir því að hún læsi myndasögur. Af því þær væru svo kvenfjandsamlegar. Hún ræðir þessa reiði og hvernig hún finnur í teiknimyndasögum ákveðið frelsi. Í teiknimyndasögum er fólk í búningum, að einhverju leyti í felum og á jaðri samfélagsins. Hún ræðir þessa tengingu sem hún finnur, sem kona og samkynhneigð kona. Það er nefnilega með þessar sögur og margar aðrar að við leitum að hetju. Það sem einum finnst ósiðsamlegt finnst öðrum ekki, það sem einum finnst andfemíniskt finnst öðrum þvert á móti,“ segir Úlfhildur. „Það verða alltaf til nýjar og nýjar hetjur sem bjóða upp á nýjar tegundir af samsömun. Hetjan deyr aldrei, segir Úlfhildur og nefnir nýjustu ofurhetjuna sem dæmi. „Ms. Marvel, þessi íslamska nýja ofurhetja er gott dæmi um það hvernig ofurhetjuímyndin getur tekið breytingum. Mér finnst alltaf mjög þreytandi þegar ofurhetjuheimurinn er einfaldaður. Hann er þvert á móti margslunginn,“ segir Úlfhildur.

Íkornastelpan á skjáinn


„Peningar ráða öllu og gott gengi Wonder Woman breytir öllu. Það er „game changer“,“ segir Hugleikur og fagnar velgengninni. „Þetta þýðir væntanlega að núna vilja allir gera stelpuofurhetjumyndir og það er spennandi,“ segir hann og nefnir nokkrar af þeim kvenkyns ofurhetjum sem honum finnast spennandi um þessar mundir.

„Við munum bráðum sjá í sjónvarpi seríu um Squirrel Girl, eða Íkornastelpuna. Hún er með íkornakrafta og talar íkornamál. Hennar sérstaða felst í að hún er fyndin. Mér finnst skrýtið að það er ekki enn komin mynd um Black Widow, eða Svörtu ekkjuna. Það gæti orðið fyrirtaks njósnamynd. Ég held að Wonder Woman opni margar dyr, það bíða margar spennandi kvenhetjur þess að fá meira rými. Mér þætti rosalega gaman að sjá mynd um Ms. Marvel eða sjónvarpsseríu. Netflix ætti að ríða á vaðið. Ms. Marvel er spennandi ofurhetja, múslimastelpa frá New Jersey sem berst við vonda karla en þarf líka á sama tíma að skila heimavinnunni sinni,“ segir Hugleikur.





She Hulk þarf nýtt nafn
„Það gæti líka verið gaman að sjá mynd um Sex Criminals. Myndasögu sem fjallar um par, þótt fókusinn sé á stelpunni. Þau hafa bæði þá krafta að þegar þau fá fullnægingu þá stöðvast tíminn. Þau nota kraftana til að ræna banka og svoleiðis.

Þá gæti verið gaman að sjá mynd um She Hulk. Þótt að sjálfsögðu þá þyrfti hún nýtt nafn. Það dugar ekki að skella bara forskeytinu She fyrir framan. Hún er áhugaverður karakter, lögfræðingur sem lemur byggingar í millitíðinni. Ég held það sé líka verið að skella í mynd með nokkrum flottum hetjum, Cat Woman, Harley Quinn og Poison Ivey. 





Tárast yfir bardögum kvenna
Svo er Bat Girl alveg frábær. Ég mæli með sögum um hana sem kallast Batgirl of Burnside. Í þeim flytur Batgirl í hipsteraúthverfi Gothamborgar og vondu karlarnir herja í gegnum samfélagsmiðla.“

Í uppáhaldi hjá Hugleiki eru líka sögurnar um Buffy the Vampire Slayer. „Hún á tuttugu ára afmæli og er helsta sjónvarpshetjan á eftir Wonder Woman. Buffy er mögnuð kvenhetja.“

Hugleikur segir eins og systir hans, ofurhetjuna ódrepandi. „Hún deyr ekki. Áhugi á lestrarefni og myndum um ofurhetjur hefur ekkert dvínað. Þær áhugaverðustu eru breyskar, með sterkan persónuleika. Það er alltaf hægt að finna eitthvað til að tengja við. Fyrirbærið hetja er okkur stanslaus innblástur og það er af því að það er alltaf þörf á hetju.“

En hvað með þá gagnrýni sem hefur komið fram á Wonder Woman. Að hún sé ekki femínísk hetja, heldur andstæðan?

„Mér finnst sú gagnrýni áhugaverð. Mér finnst öll umræða um teiknimyndasögur spennandi og eiga rétt á sér. Ég heyri líka sögur um stelpur sem tárast yfir bardagaatriðunum í myndinni. Af því þær hafa aldrei séð slík atriði áður. Það er magnað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×