Lífið

Gróðursetja töfratré

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Mörður vinnur ötullega að því að gera heiminn betri.
Mörður vinnur ötullega að því að gera heiminn betri. Mynd/úr einkasafni
Verkefnið Töfrastaðir vinnur að því að bæta aðstæður fyrir plöntur, dýr og fólk og athafnasetrið Sandar suðursins er stærðar skref í þá átt,“ segir Mörður G. Ottesen, forsvarsmaður Töfrastaða sem taka við landspildu í dag í nágrenni Þorlákshafnar.

Samningur um það verður handsalaður með viðhöfn er Mörður aðstoðar Gunnstein R. Ómarsson, bæjarstjóra Ölfushrepps, við að gróðursetja þar töfratré.

„Við erum að fá nokkra hektara lands þar sem nú er aðallega sandur, hraun, lúpína og pínulítið melgresi,“ útskýrir Mörður sem kveðst vilja hafa lúpínuna. „Ég vil allt lífrænt sem græðir landið, lúpínan vex ekki hátt út af vindinum hér og við munum örugglega skera hana niður einu sinni eða tvisvar yfir sumarið, þá myndar hún jarðveg.

Svo fáum við einn farm af moltu á viku frá Íslenska gámafélaginu og síðan fáum við líka vörubretti og munum búa til skjól fyrir plöntur með þeim. Einnig fáum við eitthvað af kurli.“

Til að festa vörubrettin þannig að þau fjúki ekki kveðst Mörður líka fá strigapoka utan af kaffibaunum.

„Við munum festa pokana á vörubrettin og setja þyngsli í þá til að halda þeim niðri. Við reynum líka að hafa brettin þannig að þau brjóti vindinn því hann kemur úr öllum áttum og við verðum með bretti fyrir allar áttir. Það hentar okkur þar sem við kennum vistvæna hönnunaraðferð sem miðar að því að tengja saman mismunandi þætti í náttúrunni og byggja þannig upp sterkt lífkerfi.“

Fram undan eru líka viðburðir til fróðleiks og skemmtunar.

„Við erum með ýmis námskeið og svo norrænu vistræktarhátíðina um miðjan júlí, þar verða um 80 fyrirlestrar og viðburðir. Þangað kemur margt fræðafólk og við fáum það til að fjölga hugmyndum okkar um hvernig best er að græða upp þetta land sem við erum með. Ein tilraunin felst í að nota kaffisekkina, hálffylla þá af mold, setja í þá fræ og kasta þeim á þekju þar sem vantar bindingu. Þá er hægt að raða saman plöntum sem henta vel saman,“ lýsir Mörður.

Hve margir vinna í Töfrastöðum? „Við erum fjögur á hverjum degi núna og hátt í 20 manns leggja til einhverja vinnu í hverri viku. Meirihlutinn er erlendur en auk mín eru þrír Íslendingar.“

Dagskráin í dag hefst klukkan 14 og stendur fram á kvöld, síðasti dagskrárliður hefst klukkan 21, hann er samverustund við varðeld, söngur og dans sem starfsfólk Töfrastaða leiðir.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×