Lífið

Jón Þór gjörsamlega sturlaðist þegar Hörður Björgvin skoraði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábær viðbrögð og mjög eðlileg bara.
Frábær viðbrögð og mjög eðlileg bara. vísir/eyþór
Rétt eins og alþjóð veit vann Ísland ótrúlegan sigur á Króötum, 1-0, í undankeppni HM á laugardalsvelli í gærkvöldi.

Varnarmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina mark leiksins undir blálokin og missti þjóðin það algjörlega.

KSÍ deilir mjög skemmtilegu myndbandi á Facebook-síðu sambandsins en þar má sjá hvernig Jón Þór Eyþórsson brást við þegar Hörður skoraði með öxlinni.

Það er Kolbrún Ösp sem deilir myndbandinu en þegar þessi frétt er skrifuð er það með 34 þúsund áhorf.

Hér að neðan má sjá þennan meistara fagna.

Hér að neðan má sjá markið á Laugardalsvelli frá því í gærkvöldi.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×