Lífið

Smekkleg blanda af því nýja og gamla á besta stað í borginni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg og skemmtileg íbúð.
Falleg og skemmtileg íbúð.
Fasteignamarkaðurinn er með stórglæsilega íbúð við Miðstræti á söluskrá á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur.

Um er að ræða 75 fermetra íbúð og hefur upprunalegum stíl verið haldið að mestu leyti ein eigin er virkilega falleg og sjarmerandi.

Húsið var byggt árið 1919 en tvö svefnherbergi eru inni í íbúðinni en ásett verð er 41,9 milljónir en fasteignamat er 32,1 milljónir.

Hér að neðan má sjá valdar myndir innan úr þessari skemmtilegu íbúð.

Húsið stendur við Miðstræti.
Gólfefnin eru upprunaleg.
Fallegt hjónaherbergi.
Eldhúsið og sjónvarpsholið.
Falleg og krúttleg borðstofa.
Fallegur garður.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×