Lífið

Rikki G var tilbúinn að deyja fyrir íslenska landsliðið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg lýsing hjá Rikka.
Skemmtileg lýsing hjá Rikka.
„Það kannski heyrist í útsendingunni að brunavarnarbjalla er farin hér í gang í höfuðstöðvum 365 en það er ekki séns að ég sé að fara ef á að rýma húsið. Það má kvikna í mér mín vegna, þetta er bara þannig leikur og ég er ekki að fara neitt.“

Þetta heyrðist í lýsingu Ríkharðs Óskars Guðnasonar þegar síðari hálfleikur Íslands og Króatíu var nýhafinn.

Það mátti greinilega heyra í brunabjöllunni en Ísland vann leikinn 1-0 og kom úrslitamarkið undir blálok leiksins, en þá skallaði Hörður Björgvin Magnússon boltann í netið.

Rikki G gjörsamlega missti það þegar boltinn fór í netið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×