Sport

Fékk aftur milljónir fyrir að vera í formi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lacy í leik með Packers.
Lacy í leik með Packers. vísir/getty
Samningur NFL-leikmannsins Eddie Lacy við Seattle Seahawks er afar sérstakur en hann var að fá bónus í annað sinn fyrir það eitt að vera ekki of feitur.

Í tvígang hefur Lacy fengið fimm og hálfa milljón króna fyrir það eitt að vera í réttri þyngd. Hann er því búinn að fá 11 milljónir króna aukalega í vasann löngu áður en tímabilið hefst.

Lacy hefur síðustu ár verið gagnrýndur fyrir að vera of feitur og Green Bay Packers gafst  upp á honum og sendi hann til Seattle fyrir lítinn pening.

Þar prófa menn nýjar aðferðir til þess að halda Lacy í formi og það byrjar ágætlega.

Verður áhugavert að sjá hvernig hlauparinn verður næsta vetur eftir að hafa haldið sér í formi allt undirbúningstímabilið. Það er þó ekki ókeypis að halda honum í formi.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×