Erlent

Franskur fyrrverandi ráðherra sleginn í götuna í París

Atli Ísleifsson skrifar
Nathalie Kosciusko-Morizet lá í götunni í dágóða stund áður en hún jafnaði sig.
Nathalie Kosciusko-Morizet lá í götunni í dágóða stund áður en hún jafnaði sig. Vísir/AFP
Franski Repúblikaninn Nathalie Kosciusko-Morizet, fyrrverandi umhverfisráðherra, missti meðvitund þegar hún var slegin í götuna af miðaldra manni á kosningafundi í París í dag.

Franskir fjölmiðlar segja Kosciusko-Morizet hafa slegið höfuðið í götuna eftir að maðurinn þrýsti kosningabækling hennar í andlitið á henni.

„Það er þér að kenna að við erum með [Sósíalistann Anne] Hidalgo sem borgarstjóra núna,“ á árásarmaðurinn að hafa hrópað samkvæmt Le Figaro.

Hidalgo hafði betur gegn Kosciusko-Morizet í kosningunum 2014. Kosciusko-Morizet berst nú við blaðamanninn Gilles Le Gendre, fulltrúa La Republique en Marche, flokks Emmanuel Macron Frakklandsforseta, um þingsæti í síðari umferð þingkosninganna á sunnudag.

Le Gendre fékk tvöfalt fleiri atkvæði en Kosciusko-Morizet í fyrri umferð kosninganna síðasta sunnudag.

Nathalie Kosciusko-Morizet eftir að hún náði meðvitund á ný.Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×