Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tímamót urðu í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu nú síðdegis þegar ferjusiglingar hófust á ný milli Reykjavíkur og Akraness. Við skelltum okkur í jómfrúrferðina og verðum í beinni útsendingu frá Akranesi í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Við verðum líka í beinni frá Laugardalnum með tónlistarmanninum Helga Björns, en þar er nú tónlistarveislan Secret Solstice hafin. Loks kíkjum við á legó-skiptimarkað, en gamlir legókarlar ganga kaupum og sölum fyrir hundruð þúsunda króna og ekki allir gera sér grein fyrir verðmæti gamalla leikfanga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×