Innlent

Transkonan Eva verður fjallkonan í Hafnarfirði

Benedikt Bóas skrifar
Það verður mikið fjör í Hafnarfirði í dag sem aðra daga.
Það verður mikið fjör í Hafnarfirði í dag sem aðra daga. Vísir/Stefán
„Þetta er mjög skemmtilegt og sjálfri finnst mér þetta mjög spennandi. Þetta er auðvitað fyrst og fremst mikill heiður,“ segir Eva Ágústa Aradóttir sem verður fjallkona Hafnarfjarðar í dag.

Eva mun lesa ljóð eftir Bryndísi Björgvinsdóttur. Eva er transkona og er, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst, fyrsta transkonan sem fer í búning fjallkonunnar.

Eva er Hafnfirðingur í húð og hár og segir hún að það sé mikil upphefð að fá að vera fjallkona í bænum. „Bærinn vildi fá transkonu í þetta hlutverk í ár og haft var samband við mig. Fjallkonan er ímynd íslensku konunnar og það er því frábært að fá að vera þessi ímynd.“

Eva Ágústa Aradóttir
Dagskrá 17. júní í Hafnarfirði hefst klukkan átta að morgni er fánar verða dregnir að húni. Eva stígur á svið á Thorsplani þar sem Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar, setur hátíðina, Karlakórinn Þrestir mun syngja og nýstúdentinn Kristinn Snær Guðmundsson flytja ávarp.

Síðan skemmta Skoppa og Skrítla, Alan Jones, Fitness æðið, Arabesque dans, sýndur verður víkingabardagi sem víkingafélagið Rimmugýgur stendur fyrir og Emmsjé Gauti kemur fram. Kynnar verða þeir Gunnar Helgason og Felix Bergsson.

Eva Ágústa segir að hún hafi hikað örlítið þegar Hafnarfjarðarbær hafði samband enda ekki vön því að koma fram opinberlega. En skrekkurinn hvarf fljótt og það er alltaf betra að stökkva en hrökkva.

„Ég vissi af því að bærinn hafði áhuga á að gera þetta og ég hugsaði mig alveg um. Þegar svo var hringt í mig ákvað ég að segja já enda einstakt tækifæri og ekki á hverjum degi sem ég fæ að vera fjallkona. Það er upphefð að fá að vera í þessum búningi,“ segir Eva Ágústa Aradóttir, fjallkona Hafnfirðinga í ár. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×