Erlent

Bandarískt herskip í árekstri við gámaflutningaskip

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Herskipið USS Fitzgerald.
Herskipið USS Fitzgerald. vísir/epa
Bandarískt herskip, USS Fitzgerald, lenti nú í kvöld í árekstri við gámaflutningaskip frá Filippseyjum rétt undan strönd Japans. Einhverjir slösuðust í árekstrinum en ekki liggur fyrir hversu margir að því er fram kemur í frétt AFP.

Samkvæmt upplýsingum frá Bandaríkjaher er japanska strandgæslan á staðnum til aðstoðar og þá var þyrla kölluð út til að flytja að minnsta kosti einn hermann á sjúkrahús sem slasaðist í árekstrinum.

Herskipið skemmdist við áreksturinn og þá flæddi einnig inn í skipið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×