Hefja rannsókn á því hvort Modric hafi logið fyrir rétti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júní 2017 17:36 Modric á leið í réttarsalinn. vísir/epa
Króatískir saksóknarar hafa hafið rannsókn á því hvort Luka Modric, leikmaður Real Madrid og króatíska landsliðsins, hafi logið fyrir rétti þegar hann bar vitni í fjársvikamáli gegn Zdravko Mamic, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dinamo Zagreb. Modric er ekki nefndur á nafn í yfirlýsingu saksóknarana en talað er um króatískan ríkisborgara, fæddan árið 1985. Tveimur dögum eftir tapið fyrir Íslandi á Laugardalsvellinum 11. júní mætti Modric í réttarsal í Osijek. Réttarhöldin voru færð þangað frá Zagreb til að koma í veg fyrir að Mamic hefði áhrif á dómara í höfuðborginni. Modric leið greinilega illa í réttarsalnum þar sem hann var spurður út í félagaskipti sín frá Dinamo Zagreb til Tottenham árið 2008. Í réttarsalnum sagði Modric að hann hefði skrifað undir viðauka við samning sinn, þess efnis að Mamic fengi hluti af söluverði Modric í júlí 2004. Það stangast á við það sem Modric sagði fyrir tveimur árum, um að hann hefði skrifað undir viðaukann eftir að hann gekk í raðir Tottenham. Falskur vitnisburður varðar allt að fimm ára fangelsi í Króatíu. Modric er mjög vinsæll og virtur í heimalandinu en ímynd hans ku hafa beðið hnekki vegna málsins.
Fótbolti Tengdar fréttir Modric hefur átt betri daga: Bar vitni í fjársvikamáli eftir tapið gegn Íslandi Luka Modric er að reyna að hjálpa króatískum yfirvöldum að koma fyrrverandi yfirmanni Dinamo Zagreb í steininn. 14. júní 2017 10:30 Mest lesið Leik lokið: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Körfubolti Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila Enski boltinn Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Enski boltinn Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Enski boltinn Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Enski boltinn Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Enski boltinn Reyndi að líma fótinn sinn fastan í stúkunni Sport „Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“ Körfubolti „Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“ Körfubolti Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Í beinni: Aston Villa - Liverpool | Síðasti útileikur Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Sungu nafn Arnórs hástöfum Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ „Förum glaðir úr Lautinni“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Sveindís Jane á skotskónum í sigurleik Sverrir Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Jafntefli eftir óvænt brotthvarf Óskars Orri mikilvægur gegn erkióvinum og FCK á toppinn Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Sjá meira
Modric hefur átt betri daga: Bar vitni í fjársvikamáli eftir tapið gegn Íslandi Luka Modric er að reyna að hjálpa króatískum yfirvöldum að koma fyrrverandi yfirmanni Dinamo Zagreb í steininn. 14. júní 2017 10:30