Finna áður óþekkt tengsl stökkbreytts gens við geðklofa Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 19. júní 2017 17:56 Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar. Vísir/Vilhelm
Íslensk erfðagreining hefur fundið áður óþekkt tengsl stökkbreytts gens við geðklofa. Stökkbreytingar í erfðavísinum RBM12 eru taldar auka verulega líkurnar á geðklofa. Á vef íslenskrar erfðagreiningar segir að leitin sem leiddi til þessarar uppgötvunar hafi byrjað hjá einni íslenskri fjölskyldu þar sem sumir fjölskyldumeðlimir höfðu greinst með geðklofa. Eftir leit í erlendum gagnabönkum fannst sambærileg stökkbreyting í sama erfðavísi (RBM12) í finnskum einstakling sem einnig hafði greinst með geðklofa. Sú stökkbreyting fannst síðan í fjölskyldumeðlimum hans sem höfðu greinst með sjúkdóminn. „Geðklofi er sjúkdómur sem felur í sér frávik í hugsun, hegðun og tjáningu tilfinninga“ segir Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, í tilkynningu á vef erfðagreiningar. Geðklofa getur einnig fylgt óráð, og hug- og skynvillur. Kári segir að ef hægt sé að varpa ljósi á orsakir geðklofa færist erfðarannsóknir nær því að skilja hvernig hugsanir og tilfinningar mótast. „Við höfum áður leitt að því líkur að þær breytingar á hugsun, sem tengjast geðklofa séu mögulega ekki afleiðing sjúkdómsins, heldur þvert á móti að sjúkdómurinn sé afleiðingin af breyttri hugsun“, heldur Kári áfram. „Og í fyrri rannsóknum okkar höfum við fundið vísbendingar um tengsl geðklofa og skapandi hugsunar.“ Rannsóknin var unnin í samstarfi við Landspítalann og SÁÁ ásamt erlendu samstarfsfólki íslenskrar erfðagreiningar. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá Kára Stefánsson fara yfir niðurstöður rannsóknarinnar.
Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Íslandsferðin sem breyttist í martröð Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Fleiri fréttir 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Langt í að þeir nái sér að fullu Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Sjá meira