Enski boltinn

Toure framlengdi um eitt ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Yaya og Pep eru orðnir vinir.
Yaya og Pep eru orðnir vinir. vísir/getty
Miðjumaðurinn Yaya Toure skrifaði í dag undir nýjan eins árs samning við Man. City.

Toure er orðinn 34 ára gamall og hefur spilað 299 leiki fyrir félagið og skorað 81 mark. Hann kom til félagsins frá Barcelona árið 2010.

Það benti fátt til þess að Toure átti sér framtíð hjá félaginu undir stjórn Pep Guardiola í upphafi síðasta tímabils. Guardiola valdi hann þá ekki í leikmannahóp sinn í Meistaradeildinni.

„Ég er yfir mig ánægður með þessa niðurstöðu. Ég sagði við sjálfan mig að ferð minni hjá City væri ekki lokið,“ sagði Toure.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×