Lífið

Skröltormur gægðist upp úr klósettinu meðan hún sat á því

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikaleg tilhugsun fyrir marga.
Hrikaleg tilhugsun fyrir marga.
Það er einhver mesta martröð margra að það skríði rotta upp úr klósettinu og jafnvel skröltormur eða snákur.

Til eru fjölmörg dæmi hér á Íslandi að rottur finni sér leið upp klósettið og einnig hefur fréttastofan heyrt dæmi um að skröltormur hafi fundist ofan í klósetti í Breiðholtinu.

Eitt vinsælasta myndbandið á Reddit er einmitt af skröltormur sem fannst ofan í klósetti í Texas. Það var kona sem tók eftir orminum þegar hún sat á klósettinu en maðurinn hennar tók myndbandið. Konan gjörsamlega sturlaðist og stökk af klósettinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×