Lífið

Líttu inn í tveggja milljarða íbúð Justin Timberlake og Jessica Biel

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega smekkleg íbúð.
Virkilega smekkleg íbúð.
Eitt heitasta stjörnupar heims Justin Timberlake og Jessica Biel festu kaup á tveggja milljarða íbúð í Tribeca hverfinu í New York á dögunum.

Meðal þeirra sem búa í byggingunni eru Harry Styles, Jennifer Lawrence, og Blake Lively og Ryan Reynolds.

Um er að ræða fjögurra herbergja 500 fermetra penthouse íbúð og inni í henni er sex baðherbergi.

Einnig má finna innisundlaug, gufubað og sérstakt leyniherbergi uppi á toppi hússins þar sem ekki er hægt að taka ljósmyndir í gegnum gluggana.

Hér að neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir innan úr eigninni. 

Fínasta borðstofa hjá hjónunum.
Falleg setustofa.
Eitt af sex baðherbergjum.
Fallegur garðir við blokkina.
Bílarkjallari fyrir alla íbúa hússins.
Svona lítur húsið út að utan. Hjónin búa á efstu hæð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×