Lífið

Corden niðurlægður í siglingu með Tom Cruise á ánni Thames

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fín viðskiptahugmynd.
Fín viðskiptahugmynd.
James Corden kom leikaranum Tom Cruise heldur betur á óvart þegar hann skipulagði sérstaka siglingu á ánni Thames í London.

Bretinn hafði leigt skip sem hann tileinkaði algjörlega ferli Tom Cruise og ber siglingin nafnið Tom´s Cruise.

Það höfðu ekki margir áhuga á Corden í siglingunni og fór það í skapið á Bretanum.

Í siglingunni er hægt að fara ítarlega yfir feril Cruise en aðalstuðið var í Risky Business básnum þar sem Cruise fór á barinn og fór í hlutverk barþjónsins.

Nokkuð skemmtilegt atriði sem sýnt var í þætti James Corden í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×