Innlent

Sjónvarpsstjóri orðinn formaður Jafnréttisráðs

Jakob Bjarnar skrifar
Þorsteinn ásamt þeim Tinnu og Magnúsi Geir.
Þorsteinn ásamt þeim Tinnu og Magnúsi Geir.
Magnús Geir Þórðarson sjónvarpsstjóri er nú jafnframt orðinn formaður Jafnréttisráðs. Frá þessu greinir í fréttatilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði nýtt Jafnréttisráð og er skipunartími til næstu alþingiskosninga. Magnús Geir er sem sagt formaður en varaformaður er Tinna Traustadóttir.

Tinna er lyfjafræðingur, hefur starfað hjá Actavis en var í 10. sæti Viðreisnar í Reykjavík norður fyrir síðustu alþingiskosningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×