Fótbolti

Griezmann vill fara frá Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Er Griezmann á leið á Old Trafford?
Er Griezmann á leið á Old Trafford? vísir/getty
Samkvæmt heimildum spænskra fjölmiðla þá steig Antoine Griezmann stórt skref í átt að Man. Utd í dag er hann tjáði Atletico Madrid að hann vildi yfirgefa félagið.

Þessi magnaði framherji hefur verið orðaður við Man. Utd vikum saman og talið er að hann hafi beðið eftir því að vita hvort Man. Utd kæmist í Meistaradeildina áður en hann tæki ákvörðun um framtíðina.

Man. Utd er sagt vera tilbúið að greiða þá upphæð sem þarf til þess að losa hann undan samningi við Atletico. Sú upphæð ku vera í kringum 90 milljónir punda.

Þessi 26 ára gamli Frakki hefur verið í herbúðum Atletico síðan 2014 og skorað 60 mörk í 111 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×