Fótbolti

Þrennukvöld hjá Matthíasi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Matthías fagnar marki með Rosenborg.
Matthías fagnar marki með Rosenborg. mynd/rosenborg
Matthías Vilhjálmsson var heldur betur á skotskónum fyrir lið sitt, Rosenborg, í norsku bikarkeppninni í kvöld.

Matthías skoraði þá þrennu fyrir Rosenborg í 2-4 sigri á Levanger. Mörkin hans Matthíasar komu á 42., 67., og 70. mínútu.

Þetta var leikur í 32-liða úrslitum keppninnar en lunginn af leikjunum í þessari umferð fór fram núna í kvöld.

Matthías var aftur á móti eini Íslendingurinn sem komst á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×