Formúla 1

Brown: Button er mjög spenntur fyrir Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jenson Button hefur haft það náðugt síðan hann lagði hjálminn óformlega á hilluna í Abú Dabí í fyrra.
Jenson Button hefur haft það náðugt síðan hann lagði hjálminn óformlega á hilluna í Abú Dabí í fyrra. Vísir/Getty
Zak Brown, framkvæmdastjóri Mclaren liðsins segir ekkert til í athugasemdum Mark Webber um að Jenson Button taki Mónakó kappkasturinn ekki alvarlega.

Button mun snúa aftur til keppni fyrir McLaren næstu helgi, þegar Mónakó kappaksturinn fer fram. Button mun taka sæti Fernando Alonso sem verður upptekinn vegna þátttöku í Indy 500 kappakstrinum í Bandaríkjunum, sem fram fer sama dag og keppnin í Mónakó.

Webber sem er góður vinur Button telur að Bretinn hafi lítinn áhuga á að keppninni. Webber byggir skoðun sína á því að Button valdi að taka ekki þátt í æfingum í Barein sem haldnar voru eftir keppnina þar.

„Jenson tók ekki þátt í æfingum í Barein, hann tekur þetta ekki alvarlega,“ sagði Webber.

Button valdi í staðinn að dvelja í Bandaríkjunum til að taka þatt í þríþrautarkeppni.

„Ég held að hann hafi ekki mikinn áhuga. Ég efast um að hann hafi verið fyrri til, til að taka upp símann með það fyrir augum að fá að taka sæti Alonso,“ bætti Webber við.

Brown er ósammála Webber. Brown viðurkennir að vita ekki hvort Button og Webber hafa rætt málið sín á milli, en bætti við að Button væri mjög spenntur fyrir því að taka þátt í Mónakó.

„Ég tel að Jenson sé mjög spenntur fyrir því að taka þátt í Mónakó. Hann er búinn að koma í verksmiðjuna og verja tíma í herminum okkar. Hann þekkir Mónakó, hann hefur unnið Mónakó,“ sagði Brown.

„Hann ók í 17 ár í Formúlu 1, hann hefur raunar bara misst úr fjórar keppnir. Það er ekki eins og hann hafi ekki ekið í þrjú ár. Hann var viss um að hermirinn myndi veita honum besta undirbúninginn. Hann veit hvað hann er að gera,“ sagði Brown að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Baráttugleði í Barselóna

Lewis Hamilton á Mercedes vann spænska kappasturinn um helgina eftir harða baráttu við Sebastian Vettel á Ferrari. Hvernig fór Hamilton að?

Hamilton: Svona á kappakstur að vera

Lewis Hamilton vann sína 55. keppni í Formúlu 1 í dag. Hann vann með klókindum liðsins og frábærum tilþrifum. Hver sagði hvað eftir keppnina?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×