Innlent

Brotist inn á Þingvöllum

Gissur Sigurðsson skrifar
Þremur peningakössum var stolið úr þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum.
Þremur peningakössum var stolið úr þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum. vísir/pjetur
Brotist var inn í þjónustumiðstöðina á Þingvöllum í nótt og þaðan stolið þremur sjóðsvélum í heilu lagi. Í þeim var skiptimynt upp á um það bil hundrað þúsund krónur, en vélarnar sjálfar eru margfalt meira virði.

Þjófavarnarkerfi gerði viðvart um innbrotið en þjófarnir voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang og eru þeir ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×