Innlent

Ekki gefa fuglunum við Tjörnina brauð

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það er líflegt við Tjörnina þessa dagana.
Það er líflegt við Tjörnina þessa dagana. Vísir/GVA
Varptíminn við Tjörnina er nú í hámarki og fyrstu ungarnir koma óvenju snemma úr eggjum. Því er mikilvægt að hætta brauðgjöfum því brauðið laðar að máfa sem eiga það til að éta litla unga.

Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjvíkurborgar þar sem brýnt er fyrir borgarbúum, sem og gestum borgarinnar, að hætta brauðgjöfum við tjörnina.

Mörg andapör dvelja við Tjörnina, þá einkum stokkendur og skúfendur og má því búast við dágóðum fjölda unga í sumar, gangi varpið vel.

Á vef Reykjavíkurborar segir að afkoma andarunga við Tjörnina ráðist helst af því hversu gott fæðuframboðið er og einnig hvort afrán sílamáfa sé mikið eða ekki.

Sílamáfarnir sækja í Tjörnina til þess að baða sig, hvíla sig og éta brauð en sumir þeirra sérhæfa sig í að éta litla unga.

„Leiða má líkur að því að ef brauðgjöf er hætt fækki máfunum. Þess vegna er mælt með því að yfir varptímann sé brauðgjöf hætt við Tjörnina.“

Reykjavíkurborg mælir með því að allri brauðgjöf sé hætt frá miðjum maí og vel fram á haustið. Næg fæða er fyrir endur og aðra fugla yfir sumartímann og fram á haust.

Þegar fer að kólna er gott að byrja að gefa öndunum aftur en einnig þá ætti að forðast brauð og velja frekar annað fóður, korn, fræ, hafra, afgangs salatblöð og elduð hrísgrjón sem er hollara fyrir endurnar og vistkerfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×