Innlent

Erla og Kristján ráðin framkvæmdastjórar hjá Pírötum

Atli Ísleifsson skrifar
Erla Hlynsdóttir og Kristján Gunnarsson.
Erla Hlynsdóttir og Kristján Gunnarsson. píratar
Erla Hlynsdóttir og Kristján Gunnarsson hafa verið ráðin til starfa hjá Pírötum. Í frétt á vef Pírata segir að flokkurinn hafi í apríl auglýst eftir starfsfólki og hafi þau Kristján og Erla verið valin hæfust úr hópi umsækjenda.

„Erla hefur starfað við fjölmiðla í áratug, meðal annars á DV, Stöð 2 og Fréttatímanum. Hún er þó einna þekktust fyrir að hafa í þrígang unnið sigur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu sem komst að þeirri niðurstöðu að ríkið hefði brotið á tjáningarfrelsi Erlu. Hún er með BA-gráðu í félags- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands en hún hefur ennfremur lokið námi í Stafrænni markaðssetningu og viðskiptum á netinu við Opna háskólann í HR.

Kristján hefur síðustu misseri unnið með þingflokki Pírata að fjölbreyttum verkefnum. Hann hefur starfað við ráðgjöf og markaðsmál í yfir áratug, bæði fyrir stór og smá fyrirtæki. Ásamt því hefur hann verið virkur í margvíslegum nýsköpunarverkefnum síðasta áratug og setti nýverið á fót sprotafyrirtækið Konto.is. Þar til í fyrra var Kristján annar eiganda vefstofunnar Kosmos & Kaos. Á ferlinum hefur hann til að mynda starfað sem markaðsstjóri, kennari og framkvæmdastjóri.

Kristján og Erla taka bæði við hlutverki framkvæmdastjóra Pírata sem áður var í höndum Sigríðar Bylgju Sigurjónsdóttur, og ennfremur hlutverki framkvæmdastjóra þingflokks Pírata. Sigríður Bylgja hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri flokksins, en mun áfram vinna með Pírötum. Hlutverk þeirra spannar bæði vinnu með þingflokki Pírata, ásamt því að hlúa að starfsemi í grasrót og baklandi Pírata um allt land,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×