Enski boltinn

Zaha gerði langan samning við Palace

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zaha þakkar stuðningsmönnum Palace fyrir tímabilið.
Zaha þakkar stuðningsmönnum Palace fyrir tímabilið. vísir/getty
Vængmaðurinn skemmtilegi Wilfried Zaha elskar Crystal Palace og er alveg sama hver þjálfar félagið. Hann ætlar að vera þar.

Þess vegna er hann búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið sem hann hefur leikið 258 leiki fyrir.

Zaha reyndi fyrir sér hjá Man. Utd árið 2013 en var þá lánaður til Palace og Cardiff. Náði aldrei að slá í gegn hjá United.

Hann var því sendur aftur til Palace. Þar líður honum best og því skrifaði hann undir langan samning við félagið.

„Palace er í hjarta mínu og okkar sögu er langt frá því að vera lokið,“ sagði Zaha.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×