Fótbolti

EM-torgið snýr aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stemningin var glæsileg síðasta sumar.
Stemningin var glæsileg síðasta sumar. vísir/eyþór
Það verður heldur betur EM-stemning á Ingólfstorgi í sumar þegar stelpurnar okkar spila á EM í Hollandi.

Allir leikir íslenska liðsins verða sýndir í risaskjá og verður vegleg dagskrá í kringum leiki íslenska liðsins.

Það verður í raun sama umgjörð og var á torginu þegar strákarnir spiluðu á EM síðasta sumar.

Fyrsti leikur íslenska liðsins fer fram þann 18. júlí og stelpurnar spila einnig 22. og 26. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×