Fótbolti

Sérkennileg klásúla í nýjum samningi Mertens

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mertens hefur blómstrað í stöðu framherja.
Mertens hefur blómstrað í stöðu framherja. vísir/getty
Dries Mertens, næstmarkahæsti leikmaður ítölsku úrvalsdeildarinnar , hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Napoli.

Mertens hefur blómstrað í stöðu fremsta manns hjá Napoli á tímabilinu og fyllt skarðið sem Gonzalo Higuaín skildi eftir sig.

Þessi þrítugi Belgi hefur skorað 27 mörk og gefið níu stoðsendingar í 34 deildarleikjum í vetur.

Mertens er með klásúlu um riftunarverð í nýja samningnum. Hún er þó þeim takmörkunum háð að aðeins kínversk félög geta virkjað hana.

Napoli mætir Sampdoria í lokaumferð ítölsku úrvalsdeildarinnar á morgun. Mertens og félagar eiga möguleika á að ná 2. sætinu með því að ná betri úrslitum en Roma sem fær Genoa í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×