Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Gulir og glaðir Grindvíkingar | Myndbönd

Strákarnir hans Óla Stefáns eru búnir að koma sér vel fyrir í 3. sæti deildarinnar.
Strákarnir hans Óla Stefáns eru búnir að koma sér vel fyrir í 3. sæti deildarinnar. vísir/ernir
Fimmtu umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með fjórum leikjum.

Hverjir áttu góðan dag og hverjir erfiðan dag? Hvernig var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Grindvíkingar urðu fyrsta liðið til að vinna Valsmenn og lyftu sér upp í 3. sætið.

Breiðablik og Víkingur R. náðu fínum úrslitum í fyrstu leikjunum undir stjórn Milosar Milojevic og Loga Ólafssonar.

KR og FH gerðu jafntefli í stórleik umferðarinnar og Stjarnan sótti þrjú stig í Grafarvoginn. Þá unnu Skagamenn sinn fyrsta sigur í sumar.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

KA 2-2 Víkingur R.

ÍBV 1-4 ÍA

Breiðablik 2-1 Víkingur Ó.

Grindavík 1-0 Valur

KR 2-2 FH

Fjölnir 1-3 Stjarnan

Arnar Már kom Skagamönnum á bragðið í Eyjum með glæsilegu marki.vísir/anton
Góð umferð fyrir ...

... Skagamenn

Eftir fjögur töp í fyrstu fjórum umferðunum og 13 mörk fengin á sig unnu Skagamenn sinn fyrsta sigur þegar þeir sóttu Eyjamenn heim á laugardaginn. ÍA spilaði betri varnarleik en liðið hefur gert og nýtti sín tækifæri vel. Arnar Már Guðjónsson, Þórður Þorsteinn Þórðarson og Albert Hafsteinsson skoruðu allir afar lagleg mörk. Akurnesingar eiga ekki í neinum vandræðum með að skora en Stjarnan er eina lið deildarinnar sem hefur gert fleiri mörk en ÍA.

... nýju þjálfarana

Milos Milojevic og Logi Ólafsson stýrðu Breiðabliki og Víkingi R. í fyrsta sinn um helgina. Blikar unnu 2-1 sigur á Víkingum frá Ólafsvík á Kópavogsvelli. Milos setti Michee Efete á bekkinn fyrir að mæta of seint í leikinn og sýndi hver ræður. Og hann náði í stigin þrjú. Víkingarnir hans Loga lentu 2-0 undir gegn KA fyrir norðan en sýndu styrk, komu til baka og náðu í stig. Logi hlýtur að vera ánægður með hvernig hans menn brugðust við í erfiðri stöðu í leiknum.

... Grindvíkinga

Í upphafi móts hefur öll athyglin verið á KA-mönnum sem byrjuðu svo frábærlega. Þeir hafa hins vegar aðeins fengið eitt stig í síðustu tveimur leikjum. Á meðan eru hinir nýliðarnir, Grindvíkingar, skellihlæjandi með 10 stig í 3. sætinu eftir sigurinn frábæra á Valsmönnum í gær. Grindvíkingar eru ólseigir með dúndur markvörð (Kristijan Jajalo) og sjóðheitan Andra Rúnar Bjarnason í fremstu víglínu. Mörk Bolvíkingsins hafa nú þegar tryggt Grindavík níu stig.

Fjölnismenn fengu á baukinn gegn Stjörnunni.vísir/anton
Erfið umferð fyrir ...

... Hafstein Briem

Hafsteinn fékk á sig vítaspyrnu og var rekinn af velli þegar ÍBV steinlá fyrir ÍA, 1-4. Í stöðunni 1-2 sofnaði Hafsteinn á verðinum og braut klaufalega á Alberti Hafsteinssyni og fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Halldór Páll Geirsson varði vítið en einum færri fengu Eyjamenn á sig tvö mörk undir lokin. Þetta var annað rauða spjaldið sem Hafsteinn fær í fyrstu fimm umferðunum og hann er á leið í tveggja leikja bann. Hafsteinn er sennilega mikilvægasti leikmaður ÍBV en hann gagnast liðinu lítið uppi í stúku.

... Fjölnismenn

Eftir frábæran sigur á FH-ingum í síðustu umferð skelltu Stjörnumenn Fjölnismönnum niður á jörðina með öruggum 1-3 sigri í leik liðanna í Grafarvoginum í gær. Fjölnir gaf Stjörnunni eitt mark í forgjöf og var í miklum vandræðum eftir það. Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, var hreinskilinn eftir leik og sagði að sínir menn hefðu einfaldlega orðið undir í baráttunni gegn sterkum Stjörnumönnum. Ekki bætti úr skák að stuðningsmenn Fjölnis gerðu sig að fíflum á Twitter fyrir leikinn með niðrandi ummælum um Sigga Dúllu.

... Anton Ara Einarsson

Anton Ari gerði sig sekan um slæm mistök í sigurmarki Grindavíkur gegn Val í gærkvöldi. Anton kom út úr markinu en hitti ekki boltann og bauð Andra Rúnari Bjarnasyni upp á að setja hann í tómt markið. Anton Ari gerir margt mjög vel en er of mistækur. Hann fékk á sig tvö klaufamörk uppi á Skaga í 2. umferðinni. Það kom ekki að sök þá en það sama var ekki uppi á teningnum í Grindavík í gær.

Gunnar Nielsen átti frábæran leik á Alvogen-vellinum.vísir/eyþór
Elías Orri Njarðarson á Extra-vellinum:

„Liðin eru mætt út á völl og byrjuð að hita. Völlurinn lítur vel út hér í kvöld, smá blautur alveg eins og við viljum hafa þetta. Tónlistin hér á Extra-vellinum er til fyrirmyndar. Kryptonite með 3 Doors Down hljómar í hljóðkerfinu um þessar mundir. Klassík.“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Grindavíkurvelli:

„Leikmenn ganga inn á völl og Game of Thrones stefið er spilað undir, það mun vera sérpantað og valið af Gunnari Þorsteinssyni. Faðir hans, Þorsteinn Gunnarsson - fyrrum íþróttafréttamaður - er að sjálfsögðu mættur í stúkuna til að styðja sinn mann.“

Gabríel Sighvatsson á Hásteinsvelli:

„Held ég geti fullyrt að hér sé um leiðinlegasta leik sumarsins að ræða. Skallin hjá Hafsteini áðan er eina skráða marktilraunin hingað til og liðin eru ekki einu sinni nálægt því að skapa sér einhver færi.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Jósef Kristinn Jósefsson, Stjarnan - 9

Igor Taskovic, Fjölni - 3

Bojan Stefán Lubicic, Fjölnir - 3

Birnir Snær Ingason, Fjölnir - 3

Pape Mamadou Faye, Víkingur Ó. - 3

Kristinn Ingi Halldórsson, Valur - 3

Umræðan á #pepsi365

Gullmarkið
Augnablikið
Bestur
Trabantinn
120 sekúndur

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×