Íslenski boltinn

Síðustu 20: Fimm bestu eftir fimm

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Í Síðustu 20 á Stöð 2 Sport HD í gær völdu þeir Hörður Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fimm bestu leikmenn fyrstu fimm umferðanna í Pepsi-deild karla. Strákarnir munu gera þetta reglulega í sumar.

Leikmennirnir fimm koma úr fimm mismunandi liðum. Þetta eru þeir Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni), Steven Lennon (FH), Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík), Dion Acoff (Val) og Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA).

Hilmar Árni, Lennon og Andri Rúnar voru einnig tilnefndir sem leikmaður mánaðarins af Pepsi-mörkunum.

Kjósa má leikmann mánaðarins með því að smella hér.

Innslagið úr Síðustu 20 í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×