Ætlar Airbnb á markað? Birgir Stefánsson skrifar 10. maí 2017 12:00 Airbnb hefur formlega lokið eins milljarðs dollara fjármögnun á lokuðum markaði sem gerir núverandi verðmæti fyrirtækisins um 31 milljarð dollara, en það voru fjárfestahóparnir Google Capital og Technology Crossover Venture sem leiddu kaupin. Forstjóri Airbnb, Brian Chesky, virðist ekki vera á þeim buxunum að flýta fyrir skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkað þrátt fyrir þrálátan orðróm og að staða þess sé betri en margra sem nýlega hafa farið í gegnum skráningu vestanhafs. Frekari fjármögnun virðist vera auðveld en undanfarin ár hefur tekist að safna þremur milljörðum dollara án þess að tilkynnt hafi verið um skráningu. Seinni helming ársins 2016 skilaði Airbnb um 450 milljónum dollara í brúttóhagnað af um 2,8 milljarða tekjum. Til samanburðar má nefna að Snapchat, sem nýverið var tekið til viðskipta í kauphöll, skilaði tapi upp á 514 milljónir dollara í fyrra. Til skamms tíma má segja að tekjur fyrirtækisins séu nokkuð fyrirsjáanlegar sem ætti að vera gott veganesti til skráningar á markað. En hvers vegna fara þeir ekki á markað strax? Einn möguleiki er að fyrirtækið vilji sýna meiri hagnað áður en formlegt skráningarferli hefst. Annar möguleiki er áhersla á aukna fjölbreytni í tekjuöflun fyrirtækisins sem hefur sýnt sig í yfirtökum og samrunum síðustu ára. Netsíðan Luxury Retreats var keypt, en þar er hægt að bóka frí með fullri þjónustu. Einnig keypti Airbnb fyrirtækið Tilt sem þróar greiðsluferli í gegnum samfélagsmiðla. Þar sem fyrirtækið stendur vel er ekki ólíklegt að það haldi áfram að tryggja stoðir fyrirtækisins með fleiri tekjupóstum til að vera enn betur undir skráningu búið þegar og ef að slíku kemur. Nýjasta þjónustuframboð Airbnb er svokallað Airbnb Trips, sem býður viðskiptavinum afþreyingu sem er stýrt af heimamönnum á hverjum áfangastað. Næsta viðbót er talin vera valmöguleikinn á bókun flugs í gegnum heimasíðuna sem myndi loka hringnum fyrir ferðabókun viðskiptavina. Getur Airbnb hækkað enn frekar í virði? Áhugavert verður að sjá hvort félaginu takist að vaxa hraðar en aðrir keppinautar og tryggja sér afgerandi forskot á þessum ört vaxandi markaði. Hið nýja módel brýtur upp gamla formið á hótel- og gistihúsabókunum þar sem ekki þarf lengur að vera með mikinn rekstur í kringum útleigu á íbúð eða húsum og auðvelt er að komast í samband við kaupendur og seljendur þjónustunnar. Í dag er Airbnb langt komið með að vera stærsti einstaki söluaðilinn í alþjóðlega ferðamannabransanum, sem er með um 2.000 milljarða dollara í árlega veltu. Þannig er Airbnb orðið verðmætara en hótelkeðjurnar Hilton og Hyatt, flugfélögin United Airlines og American Airlines sem og netsíður Expedia og Ctrip. Fjárfestar hafa þó ástæðu til að hafa varann á vegna aukinnar samkeppni, vaxandi kvaða frá yfirvöldum og síðast en ekki síst hækkandi verðlags. Talsvert er rætt um möguleikann á skráningu félagsins á markað en ýmislegt getur haft áhrif á verðið þegar og ef þar að kemur. Eftirtalin fimm atriði gera stöðu fyrirtækisins sterka og möguleika á enn frekari vexti: 1) Airbnb keppir á stórum markaði sem tekur örum breytingum. 2) Airbnb hagnast á breyttum ferðavenjum ferðamanna. 3) Félagið er nú þegar leiðandi í útleigu á gistirými sem ekki telst til hótels eða gistiheimila. 4) Vaxtarmöguleikar eru margir og áhugaverðir og fyrirtækið er þegar byrjað að breikka starfsemi sína. 5) Opið og gegnsætt markaðstorg kaupenda og seljanda hefur reynst vel. Ljóst er að Airbnb er að vaxa hratt á markaði sem ekki var til fyrir nokkrum árum en tilheyrir hinum risastóra markaði ferðamennsku sem hefur alla möguleika til að vaxa enn meira á næstu árum. Það verður því spennandi að fylgjast með viðtökunum ef af skráningu verður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Af hverju kýs ég ekki Katrínu Jakobs Birgir Dýrfjörð Skoðun Menningarlegur og sáttfús forseti Aldís Aðalbjarnardóttir Skoðun Það sem spurt var um - en svörin þunn og kom kannski ekki á óvart Sigurður Páll Jónsson Skoðun Það er mikill munur á þeim sem vanda sig og hinum sem vanda sig ekki Sigurður G. Guðjónsson Skoðun Lýðskrum eða minnisleysi? Þorvaldur Þorvaldsson Skoðun Baldur er minn forseti Hjalti Vignisson Skoðun Þar sem er reykur þar er… Árni Guðmundsson Skoðun Vörður á veginum framundan Davíð Þorláksson Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Var upplýsingagjöf í covidfaraldrinum upplýsingaóreiða? Steingrímur Atlason skrifar Skoðun Mikilvægi íþróttafélaga Lárus Sigurðsson skrifar Skoðun Sumargjafir Gunnar Ingi Björnsson skrifar Skoðun Þar sem er reykur þar er… Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Betur má ef duga skal Kristinn Árni L. Hróbjartsson skrifar Skoðun Menningarlegur og sáttfús forseti Aldís Aðalbjarnardóttir skrifar Skoðun Leið að hraðari innviðauppbyggingu Sölvi Sturluson skrifar Skoðun Viltu bjarga heiminum? Samfélagsdrifnar loftslagslausnir Inga Rós Antoníusdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar í aðdraganda kosninga Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Lýðskrum eða minnisleysi? Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Stuðningur við langtímakjarasamninga Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Baldur er minn forseti Hjalti Vignisson skrifar Skoðun Vits er þörf þeim er víða ratar- um gagnsemi og glapræði gervigreindar Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Að læra nýtt tungumál og sýna þolinmæði Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Það er mikill munur á þeim sem vanda sig og hinum sem vanda sig ekki Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Það sem spurt var um - en svörin þunn og kom kannski ekki á óvart Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Að rækta garðinn sinn Eva Dögg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð og siðareglur lækna Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vörður á veginum framundan Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Umferðarreglur og öryggi fyrir Hjólað í vinnuna Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Af hverju kýs ég ekki Katrínu Jakobs Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Kjósum sameiningu, ekki sundrungu Helgi Ingólfsson skrifar Skoðun Forseti allra Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Ný nálgun í afreksíþróttum – Nýsköpun Erlingur Jóhannsson skrifar Skoðun Prófsteinninn Katrín Harðardóttir skrifar Skoðun Innrás á Rafah stríðir gegn allri mannúð Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Börnin okkar Hlédís Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vextir geta og þurfa að lækka Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Söngvakeppni og stríðsglæpir Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Leikskólakennara á eftirlaunum er ofboðið Ásdís Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Vits er þörf þeim er víða ratar- um gagnsemi og glapræði gervigreindar Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Það er mikill munur á þeim sem vanda sig og hinum sem vanda sig ekki Sigurður G. Guðjónsson skrifar
Skoðun Það sem spurt var um - en svörin þunn og kom kannski ekki á óvart Sigurður Páll Jónsson skrifar