Fótbolti

Mourinho: Mikilvægasti leikur í sögu Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho vill alvöru stuðning í kvöld.
Mourinho vill alvöru stuðning í kvöld. vísir/getty
Það vantar ekki dramatíkina í Jose Mourinho, stjóra Man. Utd, fyrir leik liðsins gegn Celta Vigo í Evrópudeildinni í kvöld.

Þetta er síðari leikur liðanna en United stendur vel að vígi eftir 1-0 sigur á Spáni.

„Ég myndi telja að bæði lið væru jafn vel stemmd fyrir leikinn. Celta segir að þetta sé mikilvægasti leikur í sögu félagsins og mér finnst þetta líka vera mikilvægasti leikurinn í sögu okkar félags,“ sagði Mourinho.

„Það skiptir ekki máli hvað gerðist áður. Það sem skiptir mestu máli er næsti leikur og hann skiptir miklu máli fyrir félagið. Bæði lið vilja þetta jafn mikið og munu gefa allt í leikinn.“

Stjórinn hefur skorað á stuðningsmenn félagsins sem honum finnst ekki alltaf skila sínu.

„Ég finn muninn milli leikja. Stuðningurinn er ekki stöðugur. Við þurfum á því að halda að áhorfendur séu á tánum frá upphafi og við skynjum vel mikilvægi leiksins.“

Leikurinn hefst klukkan 19.05 í kvöld og verður í beinni á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×