Bæjarfulltrúar í níu daga ferð til Kína Sveinn Arnarsson skrifar 13. maí 2017 07:00 Eiríkrur Björn Björgvinsson fer fyrir hópi 11 manna sendinefndar til Sjanghæ í Kína. vísir/ernir
Hálf bæjarstjórn Akureyrar auk bæjarstjóra, aðstoðarmanns hans og fyrrverandi forseta bæjarstjórnar munu fara í níu daga ferð til Sjanghæ í Kína í lok mánaðarins til að kynnast þar fólki og fyrirtækjum og styrkja tengsl Akureyrarkaupstaðar við bæjarfélagið Lingang í Sjanghæ. Forseti bæjarstjórnar segir þessa ferð geta skipt miklu fyrir bæjarfélagið. Sendinefnd Akureyrar og tengdra aðila, svo sem fyrirtækja í eigu bæjarins að langstærstum hluta, telur alls ellefu einstaklinga. Munu þau fara utan þann 23. maí og áætluð heimkoma er níu dögum síðar. „Okkur var boðið á viðburð í Kína og við teljum þetta mikilvæga samkomu fyrir Akureyri og þá starfsemi sem við viljum byggja upp hér varðandi siglingar til að mynda. Einnig verða með í för rektor Háskólans á Akureyri og fyrrverandi forseti Íslands,“ segir Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Allir bæjarfulltrúar L-listans fara í ferðina, tveir frá Sjálfstæðisflokki og einn frá Samfylkingu. Að auki fer framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Norðurorku auk bæjarstjóra ásamt aðstoðarmanni. Af þessum ellefu einstaklingum eru þrjár konur sem fara í ferðina. Matthías segir ferðina munu kosta um 200 þúsund á hvern einstakling, ferðalag frá Akureyri til Kína. Kostnaður er allur greiddur af Akureyrarbæ og tengdum fyrirtækjum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Innlent Þolinmæði saminganefnda á þrotum Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira