Innlent

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fá Fjölskylduviðurkenningu

Anton Egilsson skrifar
Við afhendingu viðurkenningarinnar í Hannesarholti í dag.
Við afhendingu viðurkenningarinnar í Hannesarholti í dag. Mynd: SOS Barnaþorpin
Fjölskylduviðurkenning SOS Barnaþorpanna var afhent í annað sinn í dag, á alþjóðlegum degi fjölskyldunnar. Viðurkenninguna í ár fengu Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fyrir að að berjast gegn birtingu ólöglegra áfengisauglýsinga og bættu auglýsingasiðferði með sérstakaáherslu á vernd barna og unglinga.

Í fréttatilkynningu frá SOS Barnaþorpum segir að með viðurkenningunni vilji SOS Barnaþorpin vekja athygli á einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og samtökum sem starfa í þágu fjölskyldna á Íslandi og/ eða vekja athygli á málefnum fjölskyldunnar.

Það var Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem veitti viðurkenninguna í Hannesarholti í dag en með henni er ætlað að vekja athygli á góðu starfi en ekki er um fjárhagsstyrk að ræða.

Í valnefnd sátu þau Drífa Sigfúsdóttir, sjálfstætt starfandi mannauðsráðgjafi, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og formaður stjórnar Rannsóknastofnunar í barna-og fjölskylduvernd HÍ, Aðalsteinn Sigfússon, Félagsmálastjóri Kópavogsbæjar og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×