Erlent

Mafían sögð hafa rekið stærstu flóttamannabúðirnar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Búðirnar eru í Isola di Capo Rizzuto.
Búðirnar eru í Isola di Capo Rizzuto. vísir/afp
Einar stærstu flóttamannabúðir Ítalíu hafa verið í höndum mafíunnar í meira en áratug, að sögn lögreglunnar þar í landi. Lögreglan handtók í dag 68 manns, þar af einn prest, í tengslum við málið. Um er að ræða Arena-mafíuna sem tilheyrir valdamiklu glæpasamtökunum 'Ndrangheta. Breska ríkisútvarpið greinir frá.

Földu eignarhaldið og drógu sér fé

Mafían er sögð hafa falið eignarhaldið með því að skýla sér bakvið kaþólsk góðgerðarsamtök. Þannig hafi hún dregið sér opinbert fé sem ætlað var flóttamannabúðunum, en talið er að mafían hafi nýtt allt að þriðjung þess fjármagns sem átti að renna í búðirnar til eigin nota. Þá hafi presturinn, Eduardo Scordio, fengið á þessu ári um 132 þúsund evrur, tæplega 15 milljónir króna fyrir að sinna „andlegri þjónustu“ á svæðinu.

Ríkið hefur varið 100 milljónum evra, eða rúmlega 11 milljörðum íslenskra króna, í flóttamannabúðirnar síðastliðin tíu ár. Búðirnar rúma allt að 1.500 manns hverju sinni.

Fólkið svelt

Tvö ár eru síðan ítalska tímaritið L‘Espresso birti grein þar sem fullyrt var að fjármunum væri stolið úr flóttamannabúðunum, og að stjórnendur sveltu flóttamenn frekar en að þurfa að nota peningana í matarinnkaup.

Ári áður var greint frá því fjöldi fólks í búðunum væri mun meiri en leyfilegt væri. Þá komst heilbrigðiseftirlitið að því árið 2013 að matarskammtarnir væru alltof litlir og maturinn oftar en ekki útrunninn.

Yfirvöld á Ítalíu telja að búðirnar hafi verið notaðar sem nokkurs konar þvottastöð fyrir peninga mafíunnar. Yfir 500 lögregluþjónar tóku þátt í aðgerðunum en hinir grunuðu eru sakaðir um fjársvik, ólöglegan vopnaburð, þjófnað og fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×