Innlent

Nýtt hjúkrunarheimili á Sólvangi tilbúið í september 2018

Atli Ísleifsson skrifar
Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Haraldur L Haraldsson og Ásgeir Loftsson fyrir hönd verktaka handsala hér verksamning vegna byggingar á hjúkrunarheimili.
Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Haraldur L Haraldsson og Ásgeir Loftsson fyrir hönd verktaka handsala hér verksamning vegna byggingar á hjúkrunarheimili. hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær hefur gengið til samninga við Munck Íslandi vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili á Sólvangi. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ kemur fram að tilboð í verkið hafi borist frá fjórum aðilum þar sem tilboð Munck Íslands reyndist vera lægst.

Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 1.515.686.540 krónur og var tilboð verktaka undir kostnaðaráætlun, eða 1.460.336.306 krónur.

„Verkefnið er bygging hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði, 3ja hæða byggingar ásamt kjallara undir hluta hússins auk tengiganga sem tengja nýbyggingu við eldra húsnæði Sólvangs. Stærð hússins er um 4.200 fermetrar.

Verkefnið felur í sér uppsteypu hússins ásamt fullnaðarfrágangi að utan sem innan svo og lóðarframkvæmdir. Búið er að ljúka jarðvinnu vegna hjúkrunarheimilisins og á Munck Íslandi að ljúka framkvæmdum við hjúkrunarheimilið sjálft í september 2018,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×